Fyrr í vikunni birtu fréttamiðlar fregnir af alvarlegri líkamsárás í Túnunum í Reykjavík. Gerendur voru af erlendu bergi brotnir og munu að öllum líkindum bætast við í fangelsiskerfi sem þegar er sprungið. Daginn áður tilkynnti dómsmálaráðherra á Alþingi að hún hygðist tímabundið stytta afplánunartíma erlendra fanga úr helmingi refsitímans niður í þriðjung sem fylgir svo brottvísun í þeim tilgangi að létta á sprungnu fangelsiskerfi.