Bandaríkin íhuga að aflétta viðskiptaþvingunum af íranskri olíu

Bandarísk stjórnvöld íhuga nú að aflétta viðskiptaþvingunum af íranskri olíu sem er þegar farin af stað frá landinu. Scott Bessent fjármálaráðherra Bandaríkjanna sagði þetta í viðtali á sjónvarpsstöðinni Fox. Með þessu væri hægt að auka olíu á markaðnum, sem myndi þá lækka verðið. Bessent segir þessa olíu nema alls 140 milljónum tunna. Hann metur það sem svo að olíuverð myndi lækka í 10-14 daga og aðgengi að olíu til þeirra sem þyrftu mest á henni að halda verði auðveldara – þar nefnir hann sérstaklega sem dæmi Indland, Japan og Malasíu. Hann upplýsti hins vegar ekki um nein smáatriði. Donald Trump tjáði sig ekki beint um þessa hugmynd í samtali við fréttamenn í gærkvöld, en sagði þó að allt yrði gert til að halda olíuverðinu niðri. Snarhækkandi olíuverð vegna stríðsins í Íran hefur vakið áhyggjur stjórnvalda víða um heim sem íhuga ýmiss konar aðgerðir. Þessi hugmynd hefur hins vegar komið mörgum sérfræðingum í opna skjöldu, enda er hún á skjön við þá utanríkisstefnu sem Bandaríkin hafa rekið í áratugi. „Svo það sé orðað hóflega, þetta er snargalið,“ sagði David Tannenbaum, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Compliance Services við breska ríkisútvarpið, BBC. Fyrirtækið sérhæfir sig í viðskiptaþvingunum gagnvart skipum. „Þetta þýðir að við myndum leyfa Íran að selja olíu, sem myndi hjálpa þeim að fjármagna stríðið.“ Aðrir sérfræðingar segja ólíklegt að þetta hefði mikil áhrif á olíuverð. Þessi tillaga kemur í framhaldi af þeirri ákvörðun Bandaríkjamanna að aflétta að hluta viðskiptaþvingunum af rússneskri olíu í síðustu viku, nokkuð sem evrópskir leiðtogar gagnrýndu harðlega.