Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóður­blöndunni

Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða.