Verið var að vinna við einn af tómum tönkum þegar sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Sundahöfn um klukkan 7.30 í morgun. Þrír starfamenn slösuðust, þar af einn alvarlega og voru þeir fluttir á slysadeild Landspítalans.