Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki vera í nornaveiðum gegn skotvopnaleyfishöfum. Einfaldlega sé verið að fyglja reglum um öryggi skotvopna. Heitar umræður hafa verið um sviptingu skotvopnaleyfis og mál ratað í fjölmiðla. Nýlega var greint frá því í frétt Vísis að maður að nafni Axel Aage Schiöth hafi verið sviptur skotvopnaleyfi og byssur hans gerðar upptækar. Lesa meira