Stjórnendur Fóðurblöndunnar segja að svo virðist sem ryksprenging hafi orðið þegar unnið var að viðhaldi á þremur tönkum fyrirtækisins. Þrír af 45 tönkum voru tómir vegna viðhalds og var verið að vinna við einn þeirra þegar sprengingin varð. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Fóðurblöndunni sem Úlfur Blandon framkvæmdastjóri undirritar. Þar segir að strax hafi verið hafist handa við að rýma húsnæðið til að tryggja vettvanginn kyrfilega. Einnig hafi verið hafist handa við að loka gati sem myndaðist á útvegg við sprenginguna til að koma í veg fyrir frekari skemmdir. Það var gert í samráði við tryggingafélagið. Unnið er að því að ræða við allt starfsfólk Fóðurblöndunnar til að fara yfir það sem gerðist og bjóða fólki sem á þarf að halda áfallahjálp Rauða krossins, segir Úlfur. Fóðurblandan fékk húsnæðið aftur til sinna umráða þegar störfum lögreglu og slökkviliðs lauk klukkan ellefu. Unnið er að því að koma starfseminni í gang á ný. Skrifstofan hefur verið opnuð. Tveir fulllestaðir fóðurbílar fóru frá fyrirtækinu í morgun og fleiri eiga að fara með sendingar til viðskiptavina síðar í dag. Fyrirtækið þakkar stjórnendum og starfsfólki Innness fyrir að skjóta skjólshúsi yfir starfsfólk Fóðurblöndunnar í morgun.