Mette Marit: „Epstein setti mig í óþægilega stöðu“

Mette-Marit krónprinsessa segist hafa eitt miklum tíma í að vinna úr þeirri staðreynd að hún hafi verið í sambandi við Jeffrey Epstein meðan hann framdi svo alvarleg kynferðisbrot. Verst sé samviskubitið gagnvart þolendum hans. Hún komst við þegar hún ræddi um þetta í viðtali við NRK sem var birt í morgun. Mette-Marit fullyrðir jafnframt að hún hafi ekki vitað þegar hún dvaldi í húsi Epsteins á Palm Beach á Flórída að hann væri dæmdur kynferðisbrotamaður. Hún segir þetta mál ekki aftra sér frá því að gegna sínu hlutverki í konungsfjölskyldunni. Aðeins veikindin sem hún glímir við geti haft áhrif á það. Hún hefur barist við alvarlegan lungnasjúkdóm sem hún greindist með árið 2018.