Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur aflétt starfsleyfisskyldu af sextán flokkum atvinnurekstrar, þar á meðal rekstri dýralæknastofa, heilsugæslustöðva og húðflúrstofa. Í stað starfsleyfisskyldu er nú aðeins gerð krafa um skráningu atvinnurekstrar.