Ó­vænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum

Jón Jóhannsson, eigandi ísgerðarinnar Skúbb, segir það nokkuð óvæntar fréttir að mjólk og rjómi séu ekki meðal helstu innihaldsefna í rjómaís frá Emmessís og mjúkís frá Kjörís. Hann segir yfirleitt ekki fleiri en fimm innihaldsefni í ísnum sem hann framleiðir og að það sé alltaf mjólk í grunninn.