Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Korngörðum í Reykjavík í morgun þegar sprening varð í húsnæði Fóðurblöndunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og er annar þeirra alvarlega slasaður. Sprengingin varð í morgun og var allt tiltækt viðbragðslið kalla út. Í tilkynningu sem Fóðurblandan sendi frá sér fyrr í dag kom fram að talið...