Orkutengdir skatta verða lækkaðir verulega á Spáni til að stemma sigur við áhrifum stríðsins í Miðausturlöndum. Þetta er hluti af fimm milljarða evra (720 milljarða króna) aðgerðarpakka sem ríkisstjórn landsins samþykkti á neyðarfundi í dag. „Sérstakar aðstæður kalla á sérstök viðbrögð,“ sagði Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar þegar hann kynnti aðgerðirnar, sem hann segir nauðsynlegar til að vernda heimili og mikilvæga innviði fyrir áhrifum hækkandi olíuverðs og orkukostnaðar. Aðgerðirnar eru alls í 80 liðum. Meðal þeirra er að lækka skatta á eldsneyti það mikið að það kosti um 20 evrum (um 3.000 krónum) minna að fylla á tank á venjulegum fólksbíl. Ríkið mun að auki niðurgreiða hvern bensínlítra um 20 evrusent (tæpar 30 krónur) til samgöngufyrirtækja, bænda, búgarða og sjómann, auk þess að veita aðstoð við fóðurkaup. Virðisaukaskattur á rafmagn verður lækkaður úr 21% í 10% og þá verður sett verðþak á gas. „Mjög reiður yfir stöðu heimsins“ Aðgerðirnar taka gildi strax á morgun. „Ég er mjög reiður yfir stöðu heimsins núna, sem vissar ákvarðanir og stjórnvöld hafa komið okkur í,“ sagði Sánchez um leið og hann ítrekaði andstöðu sína við stríðið. „Spænskir skattgreiðendur þurfa að gjalda fyrir það með fimm milljörðum evra, sem hefði verið hægt að nýta í menntun, heilbrigðismál og félagsþjónustu.“ Hann sagði jafnframt að Spánn væri það land sem væri best til þess fallið að takast á við vandann þar sem það reiddi sig svo mikið á endurnýjanlega orkugjafa. Þeir eru 55% af orkunýtingu Spánverja.