Karlmaður á fertugsaldri lést í vinnuslysi í Korngörðum í Reykjavík í morgun þegar sprenging varð í atvinnuhúsnæði Fóðurblöndunnar. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild, annar alvarlega slasaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta og héldu viðbragðsaðilar strax á staðinn. Þegar þeir komu á vettvang voru þar nokkrir aðrir starfsmenn. Hlúð var að þeim í húsi nærliggjandi fyrirtækis og reyndust þeir ómeiddir.