Lést í sprengingunni

Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar að Korngörðum í Reykjavík í morgun. Tveir aðrir voru fluttir á slysadeild og annar þeirra er alvarlega slasaður. Talið er að um ryksprengingu í tómum tanki hafi verið að ræða.