Stöður skólameistara formlega auglýstar

Embætti skólameistara Borgarholtsskóla, Menntaskólans á Egilsstöðum og Menntaskólans við Hamrahlíð hafa verið formlega auglýst laus til umsóknar. Auglýsingarnar birtust í Lögbirtingablaði dómsmálaráðuneytisins í dag. Það vakti mikla athygli og þónokkra gagnrýni þegar Guðmundur Ingi Kristinsson, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, tilkynnti fyrst að staða Ársæls Guðmundssonar, skólameistara Borgarholtsskóla, yrði auglýst laus. Guðmundur Ingi sagði á sínum tíma að það væri tilviljun að staða Ársæls væri sú fyrsta sem væri auglýst en tilkynnt var skömmu síðar að staða Árna Ólasonar, skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum, væri einnig laus. Árni heyrði fyrst af því að starf hans yrði auglýst í fréttum ríkisútvarpsins. Samkvæmt Guðmundi Inga voru auglýsingarnar á störfunum liður í endurskoðun á framhaldsskólakerfinu í heild sinni. Vel eru þekkt samskipti Áræls og Ingu Sæland, sem þá var félags- og húsnæðismálaráðherra, eftir að íþróttaskór barnabarns hennar týndust í skólanum. Inga Sæland er í dag barna- og menntamálaráðherra. Ársæll hefur síðan þá leitað réttar síns þar sem hann taldi að brotið hefði verið á sér með auglýsingu starfsins. Hann sóttist eftir því að fara með vitnamál fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Því var hafnað og hefur Ársæll ákært þá ákvörðun til Landsréttar. Minna hefur gustað í kringum auglýsingu á stöðu skólameistara Menntaskólans við Hamrahlíð en Steinn Jóhannsson hafði gegnt þeirri stöðu í um sex ár þegar hann varð sviðsstjóri Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar fyrir rúmlega ári síðan.