3.700 íbúðir rísa í Hallahverfi

Vinningstillaga að rammaskipulagi að nýju Hallahverfi í Úlfarsárdal gerir ráð fyrir að þar rísi allt að 3.700 íbúðir á 80 hektara svæði. Tillagan var kynnt á opnum kynningarfundi borgarstjóra um húsnæðismál í dag. Arkitektastofan Nordic Office of Architecture í samstarfi við Eflu og dönsku landslagsarkitektastofuna SLA báru sigur úr bítum í hugmyndaleitinni, að því er fram kemur í tilkynningu . Samkvæmt tillögunni verður hverfismiðja með fjölbreyttri starfsemi, þjónustu og stofnunum. Samkvæmt tillögu að breytingum á aðalskipulagi vegna uppbyggingar Halla og nágrennis, sem birt var í skipulagsgátt í nóvember í fyrra, verður byggð í hverfinu ekki eins þétt og í Keldnalandi og á Ártúnshöfða, heldur á þéttni að taka mið af byggð á aðliggjandi svæðum. Miðað er við hús fimm hæðir eða lægri. Utan áhrifasvæðis borgarlínu Þar segir jafnframt að Hallahverfið sé utan áhrifasvæðis borgarlínu. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er áætlað að 24 þúsund íbúðir rísi til ársins 2040, þar af í mesta lagi 4.800 íbúðir utan áhrifasvæðis borgarlínu. Í Hallahverfi verður þó lögð áhersla á viðstvæna ferðamáta, samkvæmt tilkynningunni, og almenningssamgöngur fá forgang með skilgreindum almenningssamgönguási. Allt svæðið á að vera í innan 10 mínútna fjarlægð frá almenningssamgöngum. Í hverfinu verða tvö skólahverfi sem einnig geta þjónað byggð við Leirtjörn, að því er segir í tillögunni.