Guðrún Brá þriðja í Suður-Afríku

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi, lauk í dag leik á Platinum Ladies Open mótinu í Suður-Afríku í þriðja sæti. Guðrún Brá lék lokahringinn á fjórum höggum undir pari og lauk leik á 14 undir pari, tveimur höggum á eftir efstu konum. Þetta var fjórða mótið sem hún leikur á á Sunshine-mótaröðinni. Næst á döfinni hjá henni er keppni á LET-mótaröðinni, Evrópumótaröð kvenna. Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir kepptu líka á mótinu og varð Hulda Clara í 33. sæti á 5 undir pari en Andre komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir annan hring. Guðrún Brá BjörgvinsdóttirGolfsamband Íslands