3,4 milljarða hagnaður hjá Isavia

Heildarafkoma Isavia eftir skatta á árinu 2025 var jákvæð um 3,4 milljarða króna, samanborið við 5,2 milljarða króna hagnað árið á undan. Afkoman versnaði því um tæpa tvo milljarða króna milli ára, þrátt fyrir aukna rekstrarafkomu fyrir afskriftir.