Húsasmíðar hefjast brátt í Fljótsdal úr timbrinu fræga sem fékkst úr stórfelldum trjáfellingum í Öskjuhlíð. Einbýlishús í nýjum byggðakjarna verða byggð alfarið úr íslensku timbri. „Þetta verður timburhús algjörlega úr íslensku timbri og að ég best veit þá er þetta fyrsta íbúðarhúsið sem er reist úr íslensku timbri. Klæðningar að utan og innan eru úr íslensku efni, lerki og ösp. Burðarvirkið er úr sitkagreni og síðan eru hurðir og gluggar úr íslensku efni líka,“ segir Helgi Gíslason, sveitarstjóri í Fljótsdal. Fljótsdælingar voru framsýnir Hreppurinn ætlar að byggja tvö timburhús í nýja byggðakjarnanum í Hamborg og leigja út í fyrstu eða jafnvel selja. Búið er að steypa sökkulinn að fyrra húsinu og þessa dagana er verið að saga burðarviðina úr gildum bolum sem fengust þegar skógur var felldur í Öskjuhlíð vegna flugvallarins. „Við komumst yfir timbur sem Skógræktarfélag Reykjavíkur hafði ræktað í Öskjuhlíðinni fyrir margt löngu síðan. Eskfirðingar keyptu þetta, Tandraberg og við fengum það keypt af þeim. Alveg úrvalstimbur sem er verið að saga núna hjá Skógarafurðum í Fljótsdal; í sögunarmyllunni þar. Okkur þótti rökrétt að Fljótsdælingar gerðu þetta því þarna hófu menn bændaskógrækt fyrstir bænda um 1970. Fljótsdælingar voru mjög framsýnir í þeim málum og nú er farinn að falla til heilmikill nytjaviður. Þá er rökrétt framhald að Fljótsdælingar gangi alla leið og noti þetta í það sem að var stefnt, til íbúðabygginga og slíkt. Vonandi hjálpar þetta til við að byggja upp íslenskan skógariðnað,“ segir Helgi.