Frumvarp ríkisstjórnarinnar um skammtímaleigu, oft kennt við Airbnb , varð að lögum á Alþingi í gær. Í því felst að heimagisting verður bundin við lögheimili einstaklings og eina eign utan þéttbýlis, eins og sumarbústað. Þá verða rekstrarleyfi gerð tímabundin til fimm ára í senn, í stað þess að vera ótímabundin. Sýslumanni verður heimilt að óska eftir upplýsingum frá ríkisskattstjóra í tengslum við eftirlit vegna skráningarskyldrar heimagistingar. Áfram verður heimilt að leigja þessar eignir í allt að 90 daga á ári. Í færslu á samfélagsmiðlum segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingar, að lagabreytingin eigi að verða til þess að breyta nokkur hundruð íbúðum úr fjárfestingarvöru í heimili. Í greinargerð við frumvarpið kemur fram að því sé ætlað að draga úr umfangi skammtímaleigu sem stunduð er án skráningar eða tilskilinna leyfa. Það eigi jafnframt að leiða til aukins framboðs á húsnæði til langtímaleigu eða fjölgun eigna í söluferli