Garpdalskirkja var byggð á árunum 1934-1935. Kirkjan er járnklædd timburkirkja á steinsteyptum sökkli. Guðjón Samúelsson arkitekt og húsameistari ríkisins teiknaði kirkjuhúsið með sérbyggðum kór og forkirkju undir klukkuturni. Yfirsmiður var Björn Jónsson smiður frá Skógum í Þorskafirði. Kirkjan var vígð þann 16. júní árið 1935. Á hvorri hlið kirkjuskips eru fjórir gluggar bogadregnir með sex […]