Aníta keppti fyrst á HM en komst ekki áfram

Heimsmeistaramótið í frjálsíþróttum hófst í Póllandi í morgun. Aníta Hinriksdóttir steig fyrst íslensku keppendanna á stokk þegar hún keppti í undanrásum í 1500 metra hlaupi nú síðdegis. Aníta varð 8. og síðust í sínum riðli á 4 mínútum, 23,17 sekúndum. Hún varð 22. yfir heildina. Þrjár íslenskar konur keppa á mótinu. Í fyrramálið hleypur Christina Alba Marcus Hafliðadóttir í undanrásum 60 metra hlaups klukkan 10:05 og á sunnudag keppir Júlía Kristín Jóhannesdóttir í 60 metra grindahlaupi klukkan 11:55 og verður sýnt frá keppninni á RÚV 2. RÚV / Mummi Lú