Sýningin Verk og vit sem sýnir það nýjasta í íslenskum byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum opnaði í gær í Laugardalshöllinni. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, setti sýninguna ásamt Eyjólfi Ármanssyni innviðaráðherra. Hátt í 100 sýnendur taka þátt í sýningunni í ár. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardaga en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana yfir helgina (21. og 22. mars). Sýningin fagnar 20 ára afmæli sínu þetta árið en fyrsta sýningin var haldin árið 2006. Samhliða sýningunni verður einnig haldin ráðstefna og aðrir viðburðir. Áhugi fagaðila og almennings hefur verið mikill, en síðustu þrjár sýningar hafa fengið um 25.000 gesti hver. Samstarfsaðilar sýningarinnar eru félags- og húsnæðismálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn. Sýningin aldrei eins mikilvæg Eyjólfur sagði við setninguna að markmið sýningarinnar hafi sjaldan verið eins mikilvæg en þau eru að efla tengsl, kynna nýjungar og auka þekkingu í iðnaðargeiranum. Hann vonaðist eftir því að á næstu dögum yrði flutt frumvarp um stofnun sérstaks innviðafélags á Alþingi. „Markmiðið með því er að opna á fjármögnun frá langtímafjárfestum og tryggja aukna samfellu í útgjöldum ríkisins til þessa mikilvæga málaflokks. Þegar sífellt er farið í stór átaksverkefni bregðast verktakar eðlilega við og fjárfesta í dýrum tækjum. Þegar jafn snögglega er stigið á bremsuna er rekstargrundvöllurinn brostinn með tilheyrandi kostnaði fyrir alla. Við verðum að koma í veg fyrir þessar miklu sveiflur þar sem stigið er á bensínið og svo aftur strax á bremsuna,“ sagði innviðarráðherra.