Það er enn og aftur komið að Músíktilraunum, tónlistarkeppninni sem upphefur ungt og upprennandi tónlistarfólk en fyrsta kvöld undankeppninnar er í kvöld. Ólátagarður, griðarstaður grasrótarinnar á Rás 2, kíkti á upptökurnar sem Músíktilraunir birtu eftir tónlistarfólkið sem keppir í ár á vefsíðu sinni.