Karlmaður lést þegar sprenging varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í morgun. Annar liggur á sjúkrahúsi alvarlega slasaður. Mennirnir voru að vinna við viðhald þegar sprengingin varð. Við förum ítarlega yfir málið í fréttatímanum klukkan hálf sjö og ræðum við framkvæmdastjóra Fóðurblöndunnar.