Ráðist á frambjóðanda að loknum kosningafundi

Ráðist var á Gitte Dreier Jacobsen, frambjóðanda flokksins Alternativet, að loknum kosningafundi í Húsi kynslóðanna í Árósum á Jótlandi í gærkvöld. Fundurinn var haldinn í tengslum við þingkosningar sem fara fram í Danmörku á þriðjudag. Danska ríkisútvarpið hefur eftir upplýsingafulltrúa flokksins að hópur fólks hafi elt Jacobsen þegar hún yfirgaf fundarstaðinn. Gerð voru hróp að henni og hún sökuð um dýraníð. Torsten Gejl eiginmaður Jacobsen, sem jafnframt er þingmaður Alternativet, segir í samtali við DR að á fundinum hafi hópur sem hafi kallað sig dýraverndunarsinna áreitt hana. Þegar hún kom út hafi sami hópur öskrað á hana með blótsyrðum og myndskeið tekið af henni þar sem myndavélin var nánast upp við höfuðið á henni. Þetta hafi gengið í 20 mínútur þangað til kona í hópnum hafi slegið hana með kreftum hnefa, meðal annars í magann, auk þess sem síminn hennar var sleginn úr höndunum á henni. Þá gripu nokkrir viðstaddir inn í og kölluðu til lögreglu. Þegar hún kom á staðinn var allt um garð gengið. Mette Frederiksen fordæmir árásina Lögreglan segist líta málið alvarlegum augum en enginn hefur verið handtekinn eða ákærður. Gejl segir að Jakobsen sé mjög brugðið vegna atviksins. „Konan mín fær nú áfallahjálp heima. Mér finnst þetta ekki í lagi.“ Gejl telur þetta eiga rætur sínar að rekja til þess að hann styður við verkefni þar sem fólki gefst kostur á að sjá hesta og nautgripi lausa innan girðingar. Það verkefni hefur verið gagnrýnt af dýraverndunarsinnum þar sem þeir telja umhverfið óeðlilegt og óheilbrigt fyrir dýrin. Aðrir stjórnmálamenn og frambjóðendur hafa fordæmt árásina í yfirlýsingum á samfélagsmiðlum í dag. Meðal þeirra er Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur. „Þetta er dýrt verð að greiða fyrir að taka þátt í lýðræði okkar. Og ofbeldi gegn stjórnmálamanni er ofbeldi gegn lýðræðinu,“ sagði hún á Facebook.