Karlmaður á fertugsaldri lést eftir öfluga sprengingu í húsnæði Fóðurblöndunnar og annar er alvarlega slasaður. Mennirnir voru að sinna viðhaldsvinnu við tóman tank þegar sprengingin varð. Framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar segir um áfall að ræða.