Besta fimleikafólk landsins mætir til keppni upp úr hádegi í dag þegar bikarmót FSÍ í áhaldafimleikum er haldið í Egilshöll. Þar má búast við harðri keppni, en bikarmótin eru oft talsvert frábrugðin Íslandsmótunum því hvert stig telur í liðakeppninni. Bein útsending frá mótinu hefst á RÚV klukkan 13:15. Koma strákarnir okkar fram hefndum Klukkan 17 verður svo flautað til leiks í síðari vináttuleik Íslands og Svíþjóðar í handbolta karla. Svíar unnu fyrri leikinn á fimmtudagskvöld með 35 mörkum gegn 33. Síðari leikurinn er í Kaplakrika í Hafnarfirði og má búast við samskonar hraða og látum og liðin sýndu á fimmtudag. Uppselt er á leikinn en bein útsending á RÚV hefst klukkan 16:40.