Allir NATO-hermenn sem hafa verið í sérstöku ráðgjafarverkefni í Írak á vegum Atlantshafsbandalagsins hafa verið fluttir til Evrópu. Þeir síðustu fóru frá Írak í dag. Nokkur hundruð NATO-hermenn hafa verið í Írak í þessum tilgangi frá árinu 2018. Hermennirnir dvöldu í írakskri herstöð í Bagdad nærri bandaríska sendiráðinu. Það sendiráð hefur reglulega orðið fyrir árásum frá því að stríð Bandaríkjanna og Ísraelsmanna við Íran hófst fyrir þremur árum. Hermennirnir hafa verið í Írak í þeim tilgangi að aðstoða, þjálfa og veita ráð til írakskra öryggissveita sem taka þátt í aðgerðum gegn jíhadistum. Þeim er yfirleitt beint gegn ISIS, hryðjuverkasamtökunum sem kenna sig við íslamskt ríki. Í yfirlýsingu NATO kemur fram að ákveðið hafi verið að flytja hermennina til í samræmi við verkferla bandalagsins gagnvart sveitum sem taka ekki þátt í beinum hernaði. Áfram yrði virkt samtal milli NATO og Íraks um samstarf. Embættismaður í Írak sagði við AFP-fréttastofuna að stjórnvöld hefðu ekki gert athugasemdir við ákvörðunina. Hún væri tímabundin í ljósi stöðunnar í öryggismálum í Miðausturlöndum. AP-fréttastofan segir að rót þessarar ákvörðunar hafi verið fjöldi árása frá Íran á hermenn í breskum, frönskum og ítölskum herstöðum í norðurhluta Íraks.