Gular veðurviðvaranir eru í gildi fyrir flesta landshluta fram til morguns og vegir um Holtavörðuheiði, Öxnadalsheiði og Steingrímsfjarðarheiði meðal annars lokaðir fram til morguns hið minnsta. Veðurfræðingur segir skammt stórra högga á milli og landsmenn þurfi að venjast vetrarríki á næstunni.