100&EINN: Mýkt og harka

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar: Síðasta plata Izleifs, Ég á móti mér, kom út haustið 2024, sjö laga verk, nánast stuttskífa. Fyrr sama ár hafði Þetta er Izleifur komið út, snöggtum lengri. Ég á móti mér sýndi fram á talsverða hæfileika í hipphopplistinni, öryggi og sjálfstraust yfir þó að eitt og annað mætti svo sem hefla betur til. 100&EINN, fullburða breiðskífa sem telur 17 lög á tveimur plötum, sígur hæglega fram úr fyrri verkum, þetta er straumlínulagaðra, þéttara, enn öruggara og einfaldlega betra. Izleifur, Ísleifur Eldur Illugason, byrjaði sem upptökustjórnandi en færði sig svo á bak við hljóðnemann. Eins og nafn plötunnar gefur til kynna er 101 hverfið í Reykjavík miðlægt en þar ólst piltur upp. Stór plata er þetta en gestir eru engir aukvisar, Birnir, Flóni, Herra Hnetusmjör, Joey Christ, GDRN, Elín Hall og Gísli Galdur. 100&EINN er ný plata eftir Izleif. Arnar Eggert Thoroddsen rýnir í gripinn sem jafnframt er plata vikunnar á Rás 2. „Vel heppnað verk í alla staði.“ Platan hefst á „Tortrygginn“, ólmandi smíð og fyrri platan er auðheyranlega partíið, mikið í gangi og mikil læti, stígandi í framvindunni allri og djammgeðveikin, vitleysisgangurinn og allar þessar bognu tilfinningar rata glæsilega inn í hljóðrásina. Þetta eru hlaðin lög, taktar hægri vinstri og þéttofinn, marglaga hljómur yfir. Í þessu partíi er auk þess gestkvæmt, Birnir rappar í hinu frábæra „Úti“, grjóthart lag, og sama má segja um „Þetta kvöld“, hvar Joey Christ tekur vel á því. Þessi fyrri hluti er hardcore , linnulaus keyrsla að heita má út í gegn. Fyrri platan endar með „Vera hann“ sem er nánast hrein klúbbatónlist. Klukkan er þrjú um nóttina og brotin glös á gólfum. Við færum okkur svo inn á tilfinningalegri, djúphugulli mið á seinni plötunni. Ég greindi stíl Izleifs á síðustu plötu en hann einkennist af dökkva, hvessu og kulda mætti segja, korter í industrial á köflum. Trent Reznor gæti alveg gestað á næstu plötu. Og þó að hægt sé á, þannig séð, í seinni hlutanum, er þetta hljóðmyndin. Hvöss tónlist en textarnir við hins vegar mjúkir og einlægir. Þessi blanda virkar vel, mótvægið myndar ákveðinn galdur. „Heitar“ tilfinningar á „köldum“ taktbedda. Umslagið er þá einkar vel heppnað og það rammar innihaldið næsta fullkomlega inn. Vel heppnað verk í alla staði, „þetta er“ Izleifur, 2026. Arnar Eggert Thoroddsen er doktor í tónlistarfræðum frá Edinborgarháskóla og aðjúnkt í fjölmiðlafræði við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Hann hefur fjallað um tónlist í íslenskum fjölmiðlum um áratugaskeið.