Stærsta kjaramálið er að endurskoða húsnæðislánakerfið segir félagsmálaráðherra sem óttast að verðbólga sprengi kjarasamninga í haust. Fjármálaráðherra tekur undir áhyggjurnar. Í núgildandi kjarasamningum á almennum vinnumarkaði er forsenduákvæði - sem þýðir að ef verðbólga hefur verið yfir 4,7% í 12 mánuði fyrir 1. september í ár megi endurskoða samninginn. Nú mælist verðbólga 5,2%, annan mánuðinn í röð, og sífellt fleiri hafa undanfarið viðrað áhyggjur af því að forsendur samninganna bresti. „Ég deili þeim áhyggjum,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. Undir það tekur Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra. „Það er ekki annað hægt,“ segir Daði. Ráðherrar fjármála og félagsmála óttast að kjarasamningar bresti í haust vegna verðbólgu. Fjármálaráðherra segir koma til greina að ríkið komi að samningum, félagsmálaráðherra segir endurskoðun húsnæðislána eitt stærsta kjaramálið. Aðgerðir til að verja kjarasamningana Ragnar segir reglulegt fundahald vera með aðilum vinnumarkaðarins þessa dagana. „Til að tala inn í aðgerðir til að verja kjarasamninga sem gætu mögulega losnað í haust.“ Hverjar eru þessar aðgerðir og hvenær verða þær kynntar? „Ég get ekki talað mig út um þær núna, það er verið að ræða málin, það er samtal í gangi um hvaða aðgerða þarf að grípa til.“ Spurður hvort til greina kæmi að ríkisstjórnin gerðist aðili að kjarasamningum, t.d. með félagslegum aðgerðum eða öðru slíku, segir Daði það vel koma til greina. „En það verður þá að vera alveg ljóst að þær aðgerðir mega ekki ýta undir eftirspurn.“ Félagsmálaráðherra vill endurskoða húsnæðislánakerfið, takist það telur hann að það yrði mikilvægt innlegg í næstu kjarasamninga. „Það myndi ég segja að væri eitt langstærsta kjaramál lægri tekjuhópanna,“ segir Ragnar Þór. Gæti endurskoðun á húsnæðislánakerfinu verið lokið í haust þegar kjarasamningar gætu losnað? „Ég á ekki endilega von á að vinnan verði búin, en það verða örugglega komnar einhverjar áfanganiðurstöður.“