Einn leikur var í 21. og næstsíðustu umferð Bónusdeildar karla í körfubolta í kvöld. Stjarnan tók á móti ÍA, en Skagamenn eru þegar fallnir. Stjarnan berst um 2. sæti deildarinnar við Tindastól, en leik Tindastóls og Álftaness var frestað til morguns vegna veðurs. Stjarnan gekk hreint til verks á heimavelli sínum í kvöld og vann með 113 stigum gegn 102. Stjarnan er með 30 stig eins og Tindastóll og fór Stjarnan upp í annað sæti deildarinnar, að minnsta kosti fram að leik morgundagsins. Lokaumferð deildarinnar er svo á fimmtudag og þá ræðst röð liðanna í úrslitakeppninni endanlega og fallbaráttan verður útkljáð. Stjarnan er í harðri baráttu um sæti í Bónusdeildinni.RÚV / Mummi Lú