Húðflúrstofur og heilsuræktarstöðvar ekki lengur starfsleyfisskyldar

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undirritað reglugerð sem léttir starfsleyfisskyldu af 16 flokkum atvinnurekstrar samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Meðal atvinnurekstrar sem breytingin nær til eru dýralæknastofur, gæludýraverslanir, heilsugæslustöðvar, heilsuræktarstöðvar, húðflúrstofur, íþróttahús og leiksvæði. Samkvæmt tilkynningu stjórnarráðsins fela breytingarnar í sér að nú er aðeins gerð krafa um skráningu atvinnurektrar, í stað starfsleyfisskyldu. Skrá þarf atvinnureksturinn í miðlæga rafræna gátt og með breytingunni er skráningin ekki auglýst í fjórar vikur og ekki er gefin út greinargerð fyrir skráningu. Skráningin er ótímabundin. Sé starfsemi bæði skráningar- og starfsleyfisskyld vegur starfsleyfið þyngra og þá þarf aðeins að sækja um starfsleyfi. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að enn frekari einföldun sé í farvatninu á starfsleyfum sem veitt eru samkvæmt lögum um hollustuþætti og mengunarvarnir. Í frumvarpi er meðal annars kveðið á um afnám auglýsingaskyldu vegna 104 tegunda atvinnustarfsemi, svo fremi sem atvinnustarfsemin falli ekki undir lög um umhverfismat.