Segist lifa frá degi til dags og sofa undir sprengjuregni

Ekkert lát er á átökunum í Mið-Austurlöndum. Ísraelar segja sigur á Írönum vísan og Íranar segjast hafa veitt óvinum landsins þungt högg í stríðinu. Ekkert fjölmiðlafrelsi er í Íran og strangt eftirlit er með öllum fréttaflutningi. Alþjóðlegir fjölmiðlar hafa takmarkaðan aðgang að landinu. Breska ríkisútvarpið, BBC, talaði við nokkra Írana um daglegt líf þeirra í stríðinu, sem hefur staðið á þriðju viku. Andlit þeirra og rödd eru hulin öryggisins vegna. „Vitið þið hver er munurinn á himninum okkar og annars staðar? Fólk annars staðar sefur undir stjörnunum en við sofum undir flugskeytum,“ segir írönsk kona. Íranskur karl segir ástandið skelfilegt. „Eftir næstum tvær vikur sé ég bæði von og kvíða fyrir framtíðinni í ættingjum mínum.“