Næstu augnablik voru óljós. Leiðsögumaðurinn taldi sig hafa séð tvo hjálma til viðbótar hverfa undir ísinn en hann var ekki viss. Þegar ísrykið settist sá hann ungu konuna liggja á grúfu á ísnum, másandi, en enn á lífi. Fyrstu orð hennar eru skráð í lögregluskýrsluna: „Ég er ólétt. Ég næ ekki andanum.“