Tímabundin aflétting á refsiaðgerðum gegn sölu og flutningi á olíu frá Íran

Olíuflutningaskip og flutningaskip sem bíða þess að sigla í gegnum Hormússund, 11. mars 2026.AP / Altaf Qadri Bandaríska fjármálaráðuneytið tilkynnti í gær um tímabundna afléttingu á refsiaðgerðum gegn sölu á olíu frá Íran. Þessi aflétting gerir það kleift að flytja og selja hráolíu og annað eldsneyti sem var komið um borð 20. mars og gildir til 20. apríl. Þetta er sams konar aflétting á refsiaðgerðum gegn flutningi og sölu á rússneskri olíu. Enn er þó bannað að flytja olíu til Kúbu, Norður-Kóreu og svæða sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu.