10 fórust og 59 eru slasaðir eftir mikinn eldsvoða í bílavarahlutaverksmiðju

Að minnsta kosti 10 eru látnir og 59 eru slasaðir, þar af 25 alvarlega, eftir mikinn eldsvoða í bílavarahlutaverksmiðju í borginni Daejeon í Suður-Kóreu, að sögn suðurkóresku fréttastofunnar Yonhap. 170 starfsmenn voru við störf þegar eldurinn braust út og fjögurra er enn saknað. Aðstæður á vettvangi voru erfiðar fyrir björgunar- og slökkvistarf. Óttast var að verksmiðjan myndi hrynja og því var ekki óhætt fyrir slökkviliðsmenn að fara strax inn í bygginguna þegar þeir komu á vettvang.