Jöklar í Himalaya-fjöllunum bráðna tvöfalt hraðar nú en árið 2000

Jöklar í Himalaya-fjöllunum eru að bráðna á tvöföldum hraða miðað við bráðnum árið 2000. Þetta sýna niðurstöður rannsókna alþjóðarannsóknasetursins International Centre for Integrated Mountain Development ( ICIMOD ) í Katmandu í Nepal. Hlýnandi veðurfar hefur þau áhrif að jöklarnir ná ekki endurheimt massa síns að vetri og við það verður bráðnun þeirra hraðari. Um þriðjungur jöklanna er á svæðum sem eru viðkvæm vegna mikillar hlýnunar. Ísmassi jöklanna í Himalya-fjöllum hefur þynnst um allt að 27 metra síðan 1975. Þá hafa 12% jökla svæðisins horfið á árunum 1990 til 2020. Meðalrýrnun jöklanna á ári, hefur aukist úr 34 sentimetrum á ári um aldarmótin upp í 73 sentimetra á hverju ári, árið 2025. Himalaya-fjallgarðurinn nær frá Hindu-Kush-fjallgarðinum í Afganistan og alla leið til Myanmar. Fjallgarðurinn er mesta ís- og snjóforðageymsla heimsins, utan norðurheimskautsins og suðurheimskautsins. Vatn og snjóbráðnun frá fjallgarðinum rennur í að minnsta kosti 10 stærstu árfarvegi í Asíu sem eru gríðarlega mikilvægar ár fyrir vatns-, fæðu- og orkuöruggi í þessum heimshluta.