Íranar skutu tveimur meðaldrægum flugskeytum að bandarísk-breskri herstöð í Indlandshafi í nótt. Hvorugt flugskeytið hæfði herstöðina, annað var skotið niður en hitt hafnaði í sjónum fyrir utan eyjuna, samkvæmt fjölmiðlinum The Wall Street Journal . Diego-Garcia herstöðin er á samnefndri eyju í Chagos-eyjaklasanum suður af Maldiví-eyjum í Indlandshafi og er í um 4.000 kílómetra fjarlægð frá Íran. Svo virðist því vera að Íranar búi yfir flugskeytum sem drífa lengra en Íranar hafa áður viljað viðurkenna. Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, sagði í síðasta mánuði að drægni íranskra flugskeyta væri takmörkuð við 2.000 kílómetra fjarlægð. Talið er að Íranar búi yfir flugskeytum sem ná allt að 3.000-4.000 kílómetra drægni. Diego Garcia er hernaðarlega mikilvæg herstöð fyrir bandaríska herinn sem geymir þar sprengjuflugvélar, kjarnorkukafbáta og búnað sem getur eytt strýriflaugum. Bretar hafa staðið í viðræðum um að færa fullveldi Diego Garcia-eyju og Chagos-eyja til Máritíusar, en þær eru nú undir breskum yfirráðum. Bretar vilja gera langtímasamning við Máritíus um að Diego-Garcia-herstöðin verði áfram á eyjunni. Donald Trump Bandaríkjaforseti og nokkrir þingmenn Repúblikanaflokksins hafa sett sig upp á móti þeim hugmyndum.