Tveir særðust í drónaárás úkraínska hersins á suðvesturhluta Saratov-héraðs í Rússlandi í nótt. Árásin var hluti af miklum árásum úkraínska hersins á Rússland í nótt. Alls voru stöðvaðir 283 drónar, samkvæmt rússneska ríkisfjölmiðlinum Tass. Rússneskur ríkisfjölmiðill hefur þessar upplýsingar eftir rússneska varnarmálaráðuneytinu og segir þetta eina stærstu samfelldu drónaárás sem Úkraínumenn hafa gert. Um 90 drónar voru skotnir niður í suðurhluta Rostov-héraðs og þá voru 27 drónar sem beint var að Moskvu stöðvaðir. Samkvæmt Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, er ráðgert að samninganefndir Úkraínu og Bandaríkjanna hittist í dag. Volodymyr Zelensky sagði á föstudaginn að úkraínska samninganefndin vildi fá skýrar upplýsingar frá samninganefnd Bandaríkjanna um næstu umferð þríhliða viðræðna Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna sem hafa frestast vegna átakanna í Mið-Austurlöndum.