HM í dag: Christina Alba þreytir frumraun og úrslit í mörgum greinum

Bein útsending hefst frá fyrri keppnishlutanum klukkan 9 á RÚV 2. Sá síðari er svo klukkan 17:20, sömuleiðis á RÚV 2. Christina Alba keppir í undanrásum í 60 metra hlaupi og er riðill hennar á dagskrá klukkan 10:05. Tvær úrslitagreinar eru svo í fyrri hlutanum; 4x400 metra blandað boðhlaup og svo hástökk karla. Fellur heimsmetið í sjöþraut? Í síðari keppnishlutanum verður svo mikið fjör og ráðast úrslit í 9 greinum. Þar gæti Svisslendingurinn Simon Ehammer bætt heimsmet Ashton Eaton frá Bandaríkjunum í sjöþraut karla frá árinu 2012. Ehammer er með 44 stigum meira en Eaton var eftir fyrri keppnisdaginn þegar metið féll. Aðrar úrslitagreinar eru: Stangarstökk karla 400 m hlaup karla 3000 m hlaup kvenna Þrístökk kvenna 3000 m hlaup karla 400 m hlaup kvenna 60 m grindahlaup karla 60 m hlaup kvenna