Í vetur hafa loftgæði í borginni verið óvenju slæm. Þessar aðstæður hafa ýmsar afleiðingar sem borgarbúar á öllum aldri hafa orðið varir við. Skýringarnar á þessu ástandi eru í raun margþættar. Þær felast í samspili óvenjulegs veðurfars, mikillar umferðar og nagladekkjanotkunar - auk takmarkaðra úrræða þegar aðstæður eru hvað erfiðastar.