Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfisráðherra segir að niðurstöður rannsóknarborana á Gálmaströnd í Steingrímsfirði hafi gefið góð fyrirheit, jafnvel um að hitastig jarðhitavatnsins sé á bilinu 100-110°C og að kerfið sé vatnsmikið og gjöfult. „Ef vel tekst til gæti jarðhitanýting á svæðinu skapað forsendur til fjölbreyttrar atvinnustarfsemi í Strandabyggð, hvort sem það yrði til þaravinnslu, bleikju- eða […]