New York Knicks hafði betur gegn nágrönnum sínum í Brooklyn Nets, 93:92, í NBA-deildinni í nótt. Knicks situr nú í þriðja sæti austurhluta deildarinnar með 46 sigra og 25 töp. Brooklyn hefur aftur á móti ekki leikið eins vel á þessari leiktíð þar sem liðið hefur aðeins unnið 17 leiki.