Kvarta yfir sambandsleysi á þekktu ofanflóðasvæði

Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, hefur töluverðar áhyggjur af fjarskiptasambandi á Vestfjörðum og tiltekur sérstaklega Kleifaheiði, þar sem skólabíll keyrir dagleg. „Það eru svæði hérna sem eru algjörlega án fjarskipta. Þetta eru svæði þar sem er ofanflóðahætta. Sneiðingurinn þegar þú keyrir upp Kleifaheiðina. Það féllu snjóflóð í fyrra og það er ekkert símasamband. Þar keyrir skólabíll á hverjum degi.“ Skólabíll keyrir daglega um Kleifaheiði með börn af Barðaströnd, bæði á leik- og grunnskólaaldri. Í góðum skilyrðum er leiðin ekki löng en hún liggur um hlykkjótta fjallvegi og yfir þekkt snjóflóðasvæði . Fjarskiptasamband á Vestfjörðum hefur oft verið stopult en eftir að lokað var fyrir 2G og 3G farsímaþjónustur hefur samband versnað til muna. „Það var slæmt fyrir en eftir að þeir tóku 2 og 3G sendana hefur það versnað til muna,” segir Gerður og bendir á að það væri ekki kostnaðarsamt að kippa þessu í liðinn. „Það er verulega mikið verk að vinna þó það sé í heildarsamhenginu ekki mjög dýrt að laga þetta. Það er víða mjög gloppótt samband.“