Rekstur BBC World Service tryggður

Breska ríkisstjórnin mun auka fjárveitingar til reksturs BBC World Service , alþjóðlegrar útvarpsstöðvar breska ríkisútvarpsins. Tvísýnt var um framtíð útvarpsstöðvarinnar fyrr á árinu. Breska utanríkis-, samveldis- og þróunarmálaskrifstofan, (Foreign, Commonwealth and Development Office) hefur samþykkt 33 milljóna punda hækkun á fjárframlagi til rekstursins, sem er 8% hækkun frá fjárframlögum frá síðasta ári, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC . Tvísýnt var um reksturinn fyrr á þessu ári eða allt þar til breska ríkisstjórnin samþykkti áframhaldandi stuðning við útvarpsstöðina. Utanríkisráðherrann Yvette Cooper fagnar því að búið sé að tryggja rekstur stöðvarinnar. Á tímum upplýsingaóreiðu skipti útvarpsstöðin BBC World service hundruðum milljónum manna víðs vegar um heiminn miklu máli. Breska ríkisútvarpið fagnar sömuleiðis hækkun á fjárframlögum en hefur gefið til kynna að það vilji að ráðuneytið taki alfarið yfir rekstur BBC World Service eins og það gerði allt fram til ársins 2014. Stærstur hluti rekstrarfjár útvarpsstöðvarinnar, eða 400 milljónir punda, kemur frá útvarpsgjöldum en breska utanríkisráðuneytið lagði til 137 milljónir punda á síðasta ári. BBC World Service nær til um 300 milljóna manna í hverri viku og útsendingarnar eru aðgengilegar á 42 tungumálum. Um þriðjungur hlustenda útvarpsstöðvarinnar búa í löndum þar sem fjölmiðlafrelsi er lítið eða ekkert. BBC hóf útsendingar frá neyðarútvarpsútsendingum í Íran í febrúar, til viðbótar við útsendingar BBC frá farsí-tungumálinu á netinu og í sjónvarpi. Þrátt fyrir að BBC sé bannað í Íran náðu útsendingar BBC til 25% íbúa Írans, þar til lokað var fyrir Internetið í janúar.