Vonast er til að rafmagn verði komið á Ísafjarðardjúpi uppúr hádegi en en rafmagnslaust hefur verið síðan í gærkvöldi. Unnið er að viðgerðum á Hólmavíkurlínu. Þetta segir Elías Jónatansson, orkubússtjóri orkubús Vestfjarða. Rafmagnslaust var á Vestfjörðum í gærkvöldi þegar Mjólkárlínu 1 sló út, sem olli straumleysi um alla Vestfirði.