Rann­sókn á banaslysinu í Fóður­blöndunni gæti tekið vikur og jafn­vel mánuði

Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á sprengingunni sem varð í húsnæði Fóðurblöndunnar í Reykjavík í gærmorgun gæti tekið vikur og jafnvel mánuði. Taka þurfi skýrslur af mörgum vitnum.