Sleggjukastarinn Elísabet Rut Rúnarsdóttir jafnaði í nótt nýlega sett Íslandsmet Guðrúnar Karítasar Hallgrímsdóttur. Guðrún Karítas kastaði 71,41 metra á kastmóti á Kýpur um síðustu helgi og bætti þá eigið Íslandsmet en Elísabet Rut, sem glímdi við meiðsli á síðasta keppnistímabili, átti metið þar á undan. Elísabet keppti á háskólamótinu UTSA Invitational í Bandaríkjunum í nótt og kastaði 71,41 metra eins og Guðrún Karítas um síðustu helgi og var ekki langt frá því að tryggja sér þátttökurétt á EM í Birmingham í sumar. Ekki nóg með að kastið hafi skilað Elísabetu gullinu og jöfnun á Íslandsmeti heldur var þetta einnig mótsmet.