Fimm mánaða adrenalínkikk fylgdi þátttöku í dönsku raunveruleikasjónvarpi

Hönnuðurinn Dögg Guðmundsdóttir hefur vakið athygli í Danmörku fyrir þátttöku í raunveruleikaþættinum Danmarks næste klassiker. „Það er verið að stoppa mig úti á götu, já smá,“ segir Dögg, spurð að því hvort hún sé orðin fræg í Danmörku en um 800 þúsund manns fylgjast með þáttunum. „Mér finnst það bara fyndið. Fólk að segja tillykke, fólk sem ég þekki ekki neitt. Þetta er bara skemmtilegt.“ Í þáttunum keppast fimm hönnuðir við að hanna húsmuni sem dómnefnd telur að gætu orðið sígildir. „Við fáum verkefni og svo eigum við að ná að fá hugmynd og hanna hlutinn og vera með hann tilbúinn eftir þrjár vikur.“ Fimm mánuðir af stanslausri vinnu Dögg segir þessu hafa fylgt talsvert stress, þar sem lítil sem ekkert hlé var á milli verkefna. „Maður er eiginlega með adrenalínsprautu í rassinum í þessa fimm mánuði því maður er bara „non-stop“ og svo allt í einu dettur maður niður og er ógeðslega þreyttur.“ Þrátt fyrir álagið segir Dögg þetta hafa verið mjög skemmtilegt. „En ég hugsa líka eftir á að hyggja: Hvernig í ósköpunum fórum við að þessu?“ Í nýjustu þáttaröð Danmarks næste klassiker voru sex þættir. Dögg bar sigur úr býtum í tveimur þeirra. Annars vegar fyrir hönnun á borði fyrir sumarhús og hins vegar fyrir hægindastól fyrir Kastrup-flugvöll. Í lokaþættinum, sem sýndur var á þriðjudag í danska sjónvarpinu, stóð Mark de Vos Dalhoum uppi sem sigurvegari. Hann er arkitekt og húsgagnahönnuður sem starfar í Kaupmannahöfn. Í vikunni lauk sjöundu þáttaröð Danmarks næste klassiker, þar sem fimm hönnuðir kepptu sín á milli. Dögg Guðmundsdóttir var í hópi þátttakenda í ár og sigraði meðal annars keppni um hönnun hægindastóls fyrir Kastrup-flugvöll. Rætt var við Dögg Guðmundsdóttur í Kastljósi á þriðjudag. Viðtalið við hana má finna í spilaranum hér fyrir ofan.